03febrúar

jæja fólk, sú gamla fer að deyja úr elli bráðlega.
Sé fram á að vakna á morgun með hrukkur, með brjóstin niður á maga og magann niður fyrir klof !!..  en en.. aðrir læra að lifa með þessu svo ég gæti gert það, þar til ég fer í botox, silkon og magaminnkun...

En annars ekkert mikið nýtt frá mér.. er e-ð voða lítið í skóla.. en fer í fleiri námskeið í mars svo þá verður maður busy :D
búin að vera að keppa smá í handbolta og fyrsti leikur gekk vel, unnum völsung,.. en svo töpuðum við fyrir FH. Ég ætlaði ekkert að spila þennan leik vegna veikinda en það var e-ð lítið af leikmönnum svo maður varð að spila og það gekk bara ágætlega þar til ég lenti í smá "orðaleik" við þjálfarann og fór bara út af og spilaði ekkert meira.  Agalegt að vera með þjálfara sem öskrar ekkert nema slæmt inn á völinn, meira segja þegar við náum að skora.. En sumir halda að þetta herði mann bara.. en það litla sem ég hef lært í íþróttasálfræði og það sem maður veit að er bara common sense þá virkar svona strategía ekki.. Fólk panikkar bara.. enda töpuðum við fyrir þessu liði sem við áttum að vinna... Núna þarf maður bara að finna út hvað maður gerir .. hvort ég einblíni bara á skvassið og hálfmaraþon hlaup eða haldi áfram í boltanum líka..

En sjæze, spilaði sko hroðalega í síðasta skvassmóti, alveg afleitt .. spila svo illa hérna heima.. þoli bara ekki svona pressu.. enda er ég ekkert viss hvort ég verði með í næsta móti, bara æfa vel og koma sterk inn í haust?

Hey já .. sá frétt á mbl áðan http://mbl.is/mm/folk/frettir/2009/02/03/eru_enn_med_gruppiur/
sko pæla í því að þessir gömlu karlar eigi enn grúppíur SEM VILJA SOFA HJÁ ÞEIM!!!...
„Hlaðborðið er enn til staðar, munurinn er bara sá að við látum sjaldnar eftir okkur en áður,“ segir Stanley. 
Ég þekki alveg nokkra kissaðdáendur og flestir þeirra eru karlmenn og miðað við áðdáun þeirra á þessum mönnum þá gætu þeir alveg orðið dráttur nr 1000 og e-ð hjá sir stanley...

Ísland aftur í fjölmiðlum erlendis.. ekki núna út af kreppu.. heldur því að forsætisráðherrann okkur er samkynhneigður sem telst voða merkilegt.. en samt betri umfjöllun en um kreppuna hehe
en jæja..
farin að læra..

03. febrúar 2009 klukkan 14:50
Rósa Jónsdóttir
Engin athugasemd
17janúar

jæja.. smá blogg.. sem verður örugglega langt.... búin að taka lykilorðið af þar sem margar ELDRI konur áttu erfitt með að muna leyniorðið og e-ð sollis.. en þar sem ég vil helst ekki að hver sem er sé að skoða myndir af mér og minni familíu þá tók ég þann link bara út :) er með aðra myndasíðu sem ég set allar mínar myndir inn á :)

Átti yndisleg jól í faðmi fjölskyldunnar og áramótin voru fín, sprengdum endalaust upp og eigum ennþá svaka mikið af flugeldum.

Janúrarinn er búinn að vera fínn. Markmið mitt um áramótin var að minnka æfingar en það er ekki alveg að ganga.. bara buin að vera að æfa og æfa síðan 1.jan hehe.
Æfingarvika:
handboltinn
Mánudagar: kl 19 spinning og ketilbjöllur
þriðjudagara: 21.50 æfing í sal
miðvikudagar: 17.30 æfing í sal
fimmtudagar: 17.45 spinning og ketilbjöllur
laugardagar: 9.30 æfing í sal

Svo er ég buin að vera með spinning á morgunana kl 6.15 byrjaði reyndar í síðustu viku, reyna að spila skvass og fara sjálf í ketilbjöllutíma í hádeginu á þri og fimmtudögum.. svo þetta er orðið little bit too much ikke? hehe..

Svo núna verður "bara" æft 10x í viku. Og þarf að skrifa niður þær æfingar sem ég vil fara á á sunnudegi fyrir vikuna og halda mig við það, er bara eins og að skrifa matardagbók hehe..

En annars vorum við fjölniskellur að spila æfingarleik í gær og unnum. Mjög sátt með leikinn og hraðinn var mun meiri hjá okkur en oft áður :) Eigum svo leik við Völsung föstudaginn 23.jan í Austurberg þar sem okkar heimavöllur er undirlagður af fyllibyttum félagsins.. Herrakvöld hjá Fjölni. Á bara ekki til orð að það sé verið að halda herrakvöld í ÍÞRÓTTAHÚSI á föstudagskveldi. Það eru aldrei neinir leikir á lau.kveldi. En þar sem þessu félagi er einungis stjórnað af körlum sem hafa tvennt sameiginlegt: áfengi og knattspyrna, þá eiga aðrar íþróttagreinar aldrei eftir að ná langt hjá þessu félagi.. því miður. Mikið um efnilega yngri leikmenn sem fara í önnur lið þar sem það er enginn áhugi að þau séu í Fjölni.. leiðinlegt að þetta sé svona..enen svona eridda víst..

En að öðru.. þá er kellan byrjuð í skólanum. Búið að vera MIKIÐ vesen í byrjun, en allt komið á hreint. Svo er núna með 2 árinu í 2 fögum.. eða 1 og hálfu og verð svo með 3ja árinu í 1 og hálfu fagi.
ótrúlega nice bekkurinn sem ég er í. Eru reyndar ekki nema 12. Maður er vanur 2 - 3 sjúkraþjálfunarbekkjum í danmörku.. herna eru 4 og það er 1-4 ár.. og fáir í hverjum bekk i think..

En æði að vera komin í rútínu aftur.

AFMÆLI EFTIR 18 daga :s minns að verða gömul.. 26 :s

laterz
Rj

 

17. janúar 2009 klukkan 15:02
Rósa Jónsdóttir
2 athugasemdir
02janúar











02. janúar 2009 klukkan 22:43
Rósa Jónsdóttir
Engin athugasemd
25desember

 

Frá því ég bloggaði síðast hefur lítið gerst, jú orðið örlítið skárri í skvassi, enn að æfa handboltann og byrjuð í ketilbjöllum sem eru skemmtilegustu lyftingarnar sem ég hef prófað. Heyrði meira að segja frá einum að það væru komnir ogguponsu vöðvar á stelpuna haha, újé..

 

Tobbi brósi er að meika það í hraðbraut og er kominn í gettu betur liðið. Snilli þar á ferð. Á lika bara eftir 1 önn og þá er kallin orðin stúdent..  

Spilaði í móti 13.des og vann þar a-flokkinn.. svo í 9 sæti .. hjá körlunum.. svo núna er bara að stefna ofar;) Tobbi er líka að bæta sig ótrúlega mikið í skvassinu og eftir nokkra mánuði á ég ekki séns í strákinn... sem er bara gott haha

Matti brósi er lika farinn að taka þátt í mótunum og er að standa sig vel guttinn.

 

Stigameistarinn var svo spilaður um daginn. 8 efstu kallarnir(þeir sem hafa verið duglegastir að mæta í mótin voru með). Þetta er meira svona ef menn/konur eru duglegir að keppa þá eiga þeir séns á að spila í þessu móti þó þeir séu ekki topp 8 á Isl J Tobbi náði að spila i þessu móti :)

Svo var valið skvassmann ársins sem var Kim M.Nielsen og skvasskona sem var ég.. again og tobbi var valinn efnilegasti spilarinn J 

En að jólunum:

Ég er búin að vera ótrúlega stillt stelpa og jólasveinninn launaði mér það með því að gefa mér í skóinn. Náttföt, eins og síðustu x mörg jól, en i luv it J

 

Áttum yndislegan aðfangadag og kvöld. Var vaknað.. bara til að horfa á dvd, svo keyrt til Gunnu frænku í heimsókn og svo heim í næstu dvd.

Fengum hamborgarahrygg í kvöldmatinn uhmmm og ís í eftirrétt.

Svo kom að því að opna gjafirnar og það voru bara sjúhúklega margir pakkar undir trénu, við bjuggumst ekki við þessu út af ástandinu í dag. En Tobbi er snilli, hann eins og ég, vorum ekki viss hvað við gætum gefið foreldrum okkar í jólagjöf þar sem við voðum ekki í seðlum. Svo tobbi ákvað að endurnýta gjafir frá fyrri árum og þetta var alveg uthugsað hjá drengnum. Hann gaf pabba e-rja bók sem pabbi er búinn að reyna að byrja á frekar oft. Það var sumsé þannig að tobbi var í íslensku áfanga núna f.jól og átti að lesa þessa sömu bók. Pabbi sagði bara við tobba að þetta væri leiðinleg bók og hann hefði aldrei komist lengra en 1.kafla og tobbi var á sama máli þar til hann fékk glósur um hvern kafla frá kennaranum sínum. Hann skildi því bókina betur og fannst hún bara helv góð. Því fékk pabbi þessa bók(sem við áttum) + glósurnar og óopnaða godfather spólur sem við áttum. Þar sem pabbi er fan nr 1,2 og 3 og var búinn að gleyma þessum þáttum. Svo fékk mamma e-rja bók sem henni finnst algjört æði og tobbi fann lika framhaldið af þessari sömu bók og setti með í pakkann og 2 dvd myndir sem aldrei hafa verið opnaðar á þessu heimili. Ég fékk 2 dvd og svo downlodaði tobbi e-rjum myndum af skvassást minni honum amr shabana og er búin að fá heiðursstúku til að horfa á það(á fremsta bekk í sjónvarpsholinu okkar). Matti fékk einnig svona svipaðar gjafir. Þetta var ótrúlega flott, allt útpældar gjafir sem ekki kostuðu krónu, við hlógum okkur máttlaus og vorum bara mjög ánægð með það sem við fengum :D

Svo fékk ma&pa aðra kreppugjöf frá okkur. Ég hafði fundið fullt af gömlum myndum frá því við börnin vorum lítil og keypti svona skrappbók og setti inn í og náðum okkur svo í heilsubælið inn á flakkara.. Svo við náum að gefa ma&pa gjafir og eyddum ekkert miklu í þær. Það var nefnilega tekið sérstaklega fram að á þessum tímum eigum við ekki að eyða okkar pening í þau. Segja þetta reyndar alltaf, en eins og ástandið er núna þá var bara stopp merki við þetta haha. En þau voru mjög ánægð með þetta J og við með okkar.   

Eyddi svo kvöldinu í singstar þar sem ég var klárlega að meika það hehe.. Getum sagt að þó svo að mamma hafi sterka og háa rödd þá hafi hún ekki englarödd hihi

 

En árið sem er að líða hefur verið gott og slæmt.

Í janúar kláraði ég loks lífeðlisfræðipróf sem ég hafði frestað svo lengi þar sem ég þorði bara ekki í það, auli i know.. en það heppnaðist allavegana vel og sá áfangi búinn. Náði líka taugafræðinni og sálfræðinni ásamt e-rju öðru og auðvitað praktíkinni minni.

Kom heim í sumar ekki beint í góðu skapi :p, en var heima hjá minni yndislegu familíu, skvassaðist litið sem ekkert og já, gerði voða lítið e-ð. Fór svo aftur til Danmerkur, byrjaði á 6.önn og fann að ég var ekki tilbúin í það og vildi bara vera heima. Var komin með nóg af danmörkinni svo fór í það að finna út hvort ég gæti ekki klárað þetta heima. Ég fékk svo leyfi til að klára námið í HÍ en sem skiptinemi frá skólanum í danmörku og byrja eftir jól J Þetta var líka rosa gott að ég gerði þetta þar sem kreppan skall á nokkru síðar og ekki auðvelt að verða sér út um pening. Danir líka eins og þeir eru, eigingjarnir og fífl.. eða svona.. og þeir voru ekkert að spara stóru orðin og voru að kalla mann ýmsum nöfnum.. Bara út af þessum helv 4 b.. mönnum.. 

Ég er byrjuð að nudda á fullu. Með nuddaðstöðu í yndislegu bryggjunni minni, komin með business card og alles ;) þríf húsið fyrir mömmu í hverri viku og sé um ýmislegt f.hana þar sem hún vinnur 24/7 og meira til ef hægt er hehe..

En ég hlakka ótrúlega mikið til að byrja í skólanum og svo á að koma sér í form. Einn sem ég þekki er að fara að æfa fyrir fitness og taka mataræðið í gegn og ég fæ að vera memm :D

 

En þetta er orðið svolítið langt svo sæl að sinni

Jólaknús

Rósa J


















25. desember 2008 klukkan 15:55
Rósa Jónsdóttir
Engin athugasemd
01desember

Ekkert mikið að frétta af mér og mínum.. mutta vinnur eins og mófó alla daga og helgar... og æfir og sefur þess á milli... og við hin sjáum um heimilið og okkur sjálf bara..

1.des.. voðalega líður tíminn e-ð hratt.. ég að reyna að læra e-ð fyrir skólann.. gengur eiginlega bara ekkert.. en það kemur.. no worries með það.. hlakka bara óheyrilega til að byrja aftur í skólanum.. og enn meira til jólanna.. verður setið og spilað NHL út í eitt og spilað borðtennis út í bílskúr..

Ég hef aldrei verið e-ð tölvuleikjafan .. og bræður mínir frekar góðir í þessu öllu.. ég hef alveg getað keyrt þessa bílaleiki en annað ekki.. þar til ég prufaði íshokkíleikinn um daginn.. og viti menn.. mín vann bara hah!!!.. reyndar mikið af e-rjum helv reglum sem við botnum hvorki upp né niður í ... en hins vegar er það sé fint að við gerum þetta bara svona í tölvu því ef ég erfiðleikum bara við það eitt að standa á skautum... hvað þá vera að þjösnast með e-rn pökk og svona staf.. eða kylfu.. eða hvað þetta heitir..

En fer víst með strúnu beib á skauta í jan... set inn dagsetningu svo þið haldið ykkur burtu frá skautasvellum þann daginn.. SurprisedTongue out

Ég og móðir mín lágum svo í mestu makindum í hjónarúminu í gær og ræða bara lífið og tilveruna.. og mamma fór e-ð að spyrja hvenær dóttlan ætlaði eiginlega að koma með barnabarn.. segir þetta oft í gríni þar sem hún átti mig 25 ára og ég víst búin að ná þeim aldri .. óldí..
Ég sagðist halda að það væri nú e-ð í það, væri ekki kominn með mann og vildi helst ekki fara að hennar ráðleggingum sem eru að hoppa niður í bæ og taka e-rn með heim bara svona einu sinni.. eða bara fara í banka.... anyhow.. segi e-ð svona.. „já.. þessir karlar eiga e-ð erfitt með að loða við mig", fór að úskýra fyrir henni að þar sem marr er svona feiminn þá heldi fólk að maður væri algjör egó og stjórnsamur.. (Það sagði Halldór magg allavegana við mig!!!Embarassed) og þá sagði nú mútta bara.. „já.. þú ert bara svo köld og leiðinleg"... JÁ SÆLLLLInnocent... og hún e-ð já nei.. sko menn halda það örugglega.. hræddir við þig eða e-ð..
Ég sagði mömmu bara að stoppa þarna..mætti ekki skjóta fótinn alveg af sér, hann hengi þáþegar bara á nokkrum liðböndum...hehehTongue out.. sagði henni að fyrst ég væri svona þá fengi hún pottþett ekki barnbarn.. enginn sem vill kalda og leiðinlega kellingu hah.... UndecidedTongue out
Fékk einnig að heyra fyrr um daginn hversu lík ég væri HENNI SYSTUR MINNI.. fór í intersport.. og afgreiðslumaðurinn spurði hvort ég væri systir hennar brynju í norvik.. og ég bara.. WHAATT.. dude.. neihts.. dóttir.. er 25 og hún 51.. thank u very much...hnussYell ... vona að des verði með skárra móti..

En við fórum að versla jólskraut í kvöld.. e-r bykoopnun.. og þar hitti múttan alla sína vinnu familíu, gerðum meira af því að spjalla en versla.. og ég hitti mömmu nr 2..hún er í herbergi hliðina á múttz 1 og þegar hún er á fundum.. alltaf undanfarnar vikur.. þá tekur muttz 2 mig bara undir sinn verndarvæng...held ég fari að skipta númerunum fyrst þeirri nr 1 finnst ég vera svona leiðinleg.. Cool
En en við keyptum ekkert mikið.. smá svona.. og ég fékk e-ð grenerí.. sem er reyndar strax farið í augun á mér...ég og ofnæmi sko...

 Tók yngri brósann með mér í skvass í gær.. Hann er frekar góður strákurinn.. en er enn að vaxa og í þokkabót með snerpuna frá systur sinni svo hann er ekki sá allra fljótasti í flotanum.. en hann er nú bara 13 .. svo við spiluðum og gerðum svo framstig í lokin og suicide.. og ég fékk svo að heyra það í dag að hann væri að deyja úr harðsperrum.. gat varla gengið upp tröppurnar til tannsa greyið hehe..Kiss

Samt held ég að þjálfarar séu farnir að linast við börn í íþróttum nú til dags.. man þegar ég var ung.. sem er þónokkuð síðan.. þá var allavega þrekæfing 2x í viku.. og yfirleitt sprettir og e-ð í lok æfinga.. .. en börn nú til dags hafa það bara of gott heheTongue out

En ætla að reyna að ná e-rjum svefni.. hef ekkert verið að sofa neitt svaka vel undanfarið... hmmm

Latar..

Sú kalda og leiðinlega..

01. desember 2008 klukkan 23:48
Rósa Jónsdóttir
1 athugasemd
25nóvember

jább.. þá er maður búinn að læsa síðunni.. og getur byrjað allt þetta dirty talk sem ég er búin að bíða helv lengi eftir að geta skrifað um.. neeiii... djóók... aldraðir foreldrar mínir og aðrir eldri ættingjar lesa enn síðuna.. svo verð eins prúð og ég get.. Tongue out

Annars er ekki mikið að gerast.. Er þó held ég ein af óheppnustu manneskjum ever.. tók bara eftir því í dag.. slegin í puttann.. ekki slæma puttann heldur annan.. náði samt að meiða mig í meidda puttanum.. gekk á hurðir og borð svona 5x á 20 min og i could keep on and on and on... e-rn tíman hlýtur þetta nú að snúast við...já og er núna tognuð í aftanverðu lærinu takk fyrir ...

við í boltanum kláruðum okkar síðasta leik fyrir jól mán 17.nov.. Svo var tekið múttz í spinning/þrek á þri, æft 2x á mið, fimmtudagurinn var spil í hádeginu og svo komu 4 úr handboltanum í spinning...
Svo var skvassmót á föst 21.nov og ég var bara ógó þreytt sko.. spilað 3 leiki og ég endaði nr 2 í a flokknum og fekk 9000kr.. játs.. og medalíu sko..

Svo á laugardeginum var byrjað kl 10 á handboltaæf og beint á eftir í skvass.. og svo sendir anna m sms.. "dómínos í kvöld".. og ég bara.. jebb.. svo kemur kellan og þá bara.. jæja.. við erum að fara að djamma.. og það var ekki aftur snúið, enduðum í handboltapartýi í mosó og svo niðri í bæ til kl 5.. i know.. ÉG.. Rósa.. VAR NIÐRÍ Í BÆ TIL KL 5. það gerðist síðast 1847...shiiit.. jæja.. En náði nú að skemmta mér helv vel.. við vorum 3 sem hentum okkur fyrst á e-rn stað.. sem ég veit ekki alveg hvaða staður það var.. en svona elvis lög ma.. og þar náði ég víst að vekja athygli ungs manns eða barns.... já.. ungs..!!!.. 87 módel.. sem mér fannst í það yngsta.. þar sem bróðir minn er einungis 3 árum yngri en það!!!.. Hefði verið illa kærð fyrir kynferðislega misnotkun .. neeea.. segi svona.. en æji.. fannst þetta of ungt..en svo var soffa víst að segja mér að þetta má alveg.. og fekk leyfi frá henni að geridda bara næst.. hvenær sosum það verður.. En ég henti honum bara fyrir framan e-rja blondínu og hann var sáttur þar.. svo ég áfram á næsta klúbb og þar vorum við til já.. 5.. gengum svo í hagléli upp hverfisgötuna.. og náðum að húkka far.. hjá Taxa..
En var rosa gaman.. verður gert aftur síðar.. er víst að fara á e-ð jólahlaðborð 13.des.. spurning hvað verður gert þá.. og svo afmæli hjá önnu m og sá djammari fer nú alltaf niður í bæ og tekur mann auddað með.. Wink

yfir í annað.. þennan fund í gær með ráðherrum og vo..Horfði ekki mikið áann.. . en mikið svakalega getur sumt fólk verið leiðinlegt.. og þegar rödd þeirra er líka til að æla yfir þá er ekki það viturlegasta að henda því upp í púlt.. e-r kella var að líkja ríkisstjórninni við rusl.. og fór að lýsa heimilishögum sínum í leiðinni, þ.e. að á hennar heimili er alltaf farið út með ruslið.. sem þýddi víst að það ætti að halda kosningar.. sem hún sagði reyndar líka svona 3hundruð sinni.. í þessari afar einkar leiðinlegu ræðu.. Og á eftir henni kom e-r framkvæmdarstjóri frá Akureyri.. OG hann var líka með e-rjar svona líkingar, hann var svo gamall að hann hvarf bara aftur til síðustu kreppu og fór að ræða hana.. og e-ð kjaftæði.... af hverju segir fólk ekki bara beint það sem það vill, beint út.. ekki allar þessar helv myndlíkingar.. fekk nóg af sollis í menntó...

...Hins vegar var frændi minn að eignast son.. fyrsta barnabarn Gunnu systur pabba og er búin að sjá myndir af rúsínunni.. algjör dúlla sko.. og amman sem og allir fjölskyldumeðlimirnir auðivitað hroðalega stolti af litla gaur.. sem þau mega sko vera.. fullkominn sá litli.. :)

jæja.. er víst á leiðinni á æf nr 2 í dag..já.. hvildi nú samt á sunnudag.. og já.. var að fatta að það er í 1sta sinn sem ég geri það síðan ég fluttist heim.. Yell.. crazy little...

jæja.. stutt í jólin.. hlakkkkaaa svo til.. mamma verður heima í 5 daga í röð, sem hefur ekki gerst síðan.. já nei.. það hefur bara aldrei gerst.. jú hugsanlega þegar jólin voru síðast svona löng..
Fer að fara að baka, og skreyta og  já... múttz komin.. jæææks..
Rj

25. nóvember 2008 klukkan 17:55
Rósa Jónsdóttir
2 athugasemdir
18nóvember

hola amigos
ég hef ákveðið að læsa síðunni minni annað kvöld.. svo fólk..senda mér mail á
rosajo83@gmail.com eða rosajonsd@hotmail.com ef þið viljið fá lykilorðið Smile
Langar bara ekki að e-r dúddi úti í bæ sé að lesa síðuna mína.. en þið hinir sem þekkið mig e-ð .. bara senda meil.. i dont bite..Wink

hinsvegar að öðru.. Unnum Þrótt á sunnudag og töpuðum fyrir vik 2 í gær.
er marin á maganum, með harpix í auganu og marbletti all over the place eftir þessar stelpurollur.. 150 á hæð og gátu ekki stoppað rétt svo tóku bara annars staðar í mann.. öss..

Er enn frekar slæm í puttanumUndecided, þarf að fara að henda mér í röntgen..

jæja.. sofa og vakna snemma til að læra ..

18. nóvember 2008 klukkan 22:47
Rósa Jónsdóttir
Engin athugasemd
14nóvember

SEXY.IS

Fékk Soffu og smára í heimsókn úr sveitinni í gær.. þau komu í smá menningarleiðangur til RVK og auðvitað kynnt fyrir skvasssal.. Þau byrjuðu á að biðja um skopparabolta.. svo sótti barnaboltann fyrir þau.. svo voru þau bara látin hlaupa.. og það var hent sér.. reynt að skjóta mann niður.. og slá..allt reynt til að koma mér út úr salnum.. svo verður eflaust erfitt fyrir þau að fara fram úr rúminu í dag hahah...Svo var farið í bryggjuna mína og borðað pizzu sem ég borgaði fyrir soffíaaaa.... og svo var bara spjallað og þetta sveitalið kom með of marga brandara úr dagvaktinni!!!!
Soffa átti svo leið upp á akranaes þegar þau fóru héðan um miðnæturbil og vona að kellan hafi komist þangað.. og smárinn á útlagann á flúðum.. beint í bjórin.. þetta sveitalið!!!

KOMNAR MYNDIR ÚR SKVASSINU OG E-Ð GAMALT OG MISGOTT HAHA


Var svo að þrífa heima og rakst á þessa gömlu grein.. Hef nú oft verið álitin strákastelpa en þarna sést það vel, drop dead sexy  hehe.. og girt upp í háls.. spurning hvort ég hafi verið að nota stuttbuxurnar sem brjóstarhaldara lika.. hmmm
og helv blonde marr.. váá.. haha.. spurning um að prufa þetta aftur....??? .. haha.. eða ekki..
Var samt svo gaman að hafa muttz með þarna út.. og svo kellan sem spilaði nr 2 er frænka min.. fjölskylduíþrótt hehe Tongue out
enjoy..


14. nóvember 2008 klukkan 11:58
Rósa Jónsdóttir
1 athugasemd
09nóvember

Óheppin..



Já 80s fílingur á æf í gær.. svaka stuð og þær flestar frekar flott klæddarCool

Svo kepptum við í dag.. og það var sko tekið kkur í rassgatið .. vorum nánast hjólbeinóttar eftir á, en allavegana guess what.. ég óheppnust.. búin að vera meidd síðan í síðasta leik fékk eina af þessum norðanrollum beint á mig, rosa litlar og nettar snöggar stelpur (nema 1 sem var 2.20 eða e-ð, og bara 17 ára oder so) sem bara tóku glímubrögin á mann.. svakalegt.. hehe..en þetta fór meira út í box, var líka kýld í kjálkann svo hann er e-ð off..  en veit ekki hvort ég er brotin í handarbeininu hjá þumlinum, fer upp á slysó á morgun ef þetta er ekki skárra.. heppin ha.. svo ég ekki með í bikarleiknum á mið.. nema ég .. neii... núna er ekkert sollis, þarf sko að jafna mig á þessu f.21.nov. þá er skvassmót...

var einmitt að segja við strúnu að það væri vonandi að ég myndi fara slysalaust í gegnum þennan leik.. en neii.. langar sko bara að grenja.. er svo óheppin.. spurning að drekkja bara sínum sorgum næstu helgi hehe.. eða ekki Innocent

Er ekki alltaf sagt óheppin í spilum heppin í ástum, eða öfugt... hahaha.. af hverju er ég ekki heppin í öðru hvoru hihi.. neii djok.. er það alveg.. bara vel vitlaust like i told u before.. en ekki út í þá sálma aftur..Tongue out

jæja.. ætla að horfa á dvd.. "ps I love you".. ótrúlega falleg mynd..
Rósa hin óheppna..
09. nóvember 2008 klukkan 22:07
Rósa Jónsdóttir
Engin athugasemd
08nóvember

búhú.. keyrði á í dag.. stein, stóran.. .. ójá.. i know.. stupid me.. og það á pabba bíl..CryÞessar helv holur hjá þessari egilshöll.. oní holu og á stein..fer ekki aftur þangað.. pabbi sagði að það væri fint áð ég hefði flutt hjólið mitt heim hehe ..

Annars svaf ég svo ótrúlega vel í nótt, fyrsta sinn í langan tíma.. enda alltaf gott að hafa kall til að kúra hjá.. eða litla stráklinginn minn hehe.. Neinei fyrsta sinn í langan tíma sem ég sef án verkja.. vá hvað það var nice.. og svaf alveg án þess að vakna neitt.... vúhú..

Spiluðum æfingarleik við unglingaflokk í morgun, og það var svona 80s þema.. svaka stuð.. leggings, legghlífar, grifflur, stórir bolir osfrv..og svo er leikur við KA á morgun í fjölnishúsinu.. be there kl: 11.00.. þurfum að reyna að vinna þetta sveitalið...Wink

nenni ekki að blogga neitt um þessa kreppu, fólk hefur bara sínar skoðanir og ég hef mínar, er þó fljót að afskrifa fólk sem segir e-ð um slæmt um mig og mína.. fólk má alveg hafa sínar skoðanir en þeir sem ekki þekkja mig eiga bara að halda sínum stóra kjafti saman.....

annars bara take care Smile
Rj

08. nóvember 2008 klukkan 21:02
Rósa Jónsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Rósa Jónsdóttir
  • Netfang: rosajo83@gmail.com
  • Staður: Reykjavík
  • Annað: msn: rosajonsd@hotmail.com

Auglýsing

Atburðarteljari

Könnun

þú sem skoðar síðuna mína ert:

Innskráningar kubbur